Dögurður á fyrsta vetrardag

Egg og beikon
Egg og beikon

Á morgun, fyrsta vetrardag, bjóða Selfoss getraunir öllum tippurum og fjölskyldum þeirra í dögurð (brunch). Hin eina sanna Hrefna steikir egg og beikon frá Krás með góðri aðstoð foreldra í 2. flokki. Með kaffinu verður svo dýrindis súkkulaðikaka frá Guðnabakaríi.

Dögurðurinn hefst kl. 11:30 í Tíbrá félagsheimili Umf. Selfoss. Selfoss getraunir hvetja tippara til að taka alla fjölskyldumeðlimi með því getraunastarf er félagsstarf fyrir alla fjölskylduna. Mætum öll og eigum notalega stund saman með léttu spjalli yfir góðum mat.

Hlökkum til að sjá ykkur,
Selfoss getraunir og 2. flokkur kvenna og karla