Dregið í Coca Cola bikarnum

Coca cola bikarinn
Coca cola bikarinn

Dregið var í 16 og 8 liða úrslit Coca Cola bikarsins í hádeginu í dag.  Strákarnir okkar eiga enn eftir leik gegn Haukum í 32 liða úrslitum, en fer sá leikur fram laugardaginn 3. apríl á Ásvöllum.  Stelpurnar okkar voru einnig í pottinum og sama má segja um vini okkar í ÍF Mílan.  Leikir 16 og 8 liða úrslita munu fara fram helgina 8.-11 apríl.  Stelpurnar fengu heimaleik gegn FH í 16 liða úrslitum.  Sigurvegarinn úr þeim leik fer í heimsókn til Víkings.  Komist strákarnir í gegnum Hauka bíður hinn helmingur Hafnarfjarðar eftir þeim, en þeirra bíður útileikur gegn FH.  Sigurvegarinn úr þeim leik mætir svo sigurvegaranum úr leik Víkings og Vals.  Frændur vorir í ÍF Mílan fá Fjölni í Hleðsluhöllina.  Sigurvegarinn í þeim leik fær svo Aftureldingu eða ÍBV í heimsókn.

Hér er svo bikardráttur dagsins í heild sinni:

16 liða úrslit karla:
FH - Haukar eða Selfoss
Vængir Júpíters - KA
Grótta - Stjarnan
Afturelding - ÍBV
Kría - ÍR
HK - Fram
Víkingur - Valur
ÍF Mílan - Fjölnir

8 liða úrslit karla:
Kría eða ÍR - HK eða Fram
Grótta eða Stjarnan - Vængir Júpíters eða KA
Afturelding eða ÍBV - ÍF Mílan eða Fjölnir
Víkingur eða Valur - FH eða Haukar/Selfoss

16 liða úrslit kvenna:
Selfoss - FH
ÍR - Haukar
Grótta - ÍBV
Fjölnir/Fylkir - KA/Þór
HK - Valur
Afturelding - Stjarnan

8 liða úrslit kvenna:
Víkingur - Selfoss eða FH
Afturelding eða Stjarnan - Fjölnir/Fylkir eða KA/Þór
Grótta eða ÍBV - HK eða Valur
ÍR eða Haukar - Fram