Ellefu met á Grunnskólamóti Árborgar

grunnskolamot2015_3-4bekkur-steGK
grunnskolamot2015_3-4bekkur-steGK

Það voru 229 keppendur í 1.-10. bekk Vallaskóla, Sunnulækjarskóla og Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri sem tóku þátt í Grunnskólamóti Árborgar sem haldið var á frjálsíþróttavellinum á Selfossi í 17. sinn þann 20. maí sl.

Glæsilegur árangur  náðist í mörgum greinum og voru 11 grunnskólamet slegin á mótinu. Keppnisaðstæður voru frekar erfiðar en breytilegur vindur og kuldi gerði keppendum erfitt fyrir. Í nokkrum tilfellum féll grunnskólamet þeim í vil sem lenti í 2. sæti en þá hefur vindur verið yfir leyfilegum mörkum hjá sigurvegarnaum en til að árangur fáist staðfestur má meðvindur ekki fara yfir 2,0 metra á sekúndu.

Harpa Svansdóttir, Vallaskóla, sigraði í 100 m hlaupi, spjótkasti og kúluvarpi í flokki 9.-10. bekkjar og setti grunnskólamet í kúluvarpi. Þórunn Ösp Jónasardóttir, Vallaskóla, sigraði í langstökki í sama flokki. Guðjón Baldur Ómarsson, Vallaskóla, sigraði bæði i langstökki og spjótkasti en í langstökkinu settu þeir Leó Snær Róbertsson og Valgarður Uni Arnarsson grunnskólamet en þeir stukku báðir 4.72 m. Leó Snær Róbertsson, Vallaskóla, sigraði síðan kúluvarpið og Valgarður Uni Arnarsson, Sunnulækjarskóla, sigraði í 100 m hlaupi og hljóp hann hraðar en núgildandi met en vindur því miður yfir leyfilegum mörkum.

Katharína Sybilla Jóhannsdóttir, Vallaskóla, sigraði bæði í 100 m hlaupi og langstökki í flokki 7.-8. bekkjar og Hildur Helga Einarsdóttir einnig úr Vallaskóla sigraði í kúluvarpi og spjótkasti í sama flokki. Hákon Birkir Grétarsson, Vallaskóla, sigraði í 100 m hlaupi, langstökki og kúluvarpi í flokki 7.-8. bekkjar en vindur var of mikill til að nýtt grunnskólamet í langstökki fengist casino online staðfest. Vilhelm Freyr Steindórsson einnig úr Vallaskóla kastaði lengst allra í spjótkastinu í sama flokki.

Eva María Baldursdóttir, Vallaskóla, sigraði í 60 m hlaupi og langstökki í flokki 6. bekkjar og setti hún nýtt grunnskólamet í langstökki en of mikill vindur var í 60 m til að met fengist staðfest. Emelía Sól Guðmundsdóttir úr Vallaskóla sigraði síðan kúluvarp í sama flokki. Hjalti Snær Helgason, Vallaskóla, sigraði í kúluvarpi og langstökki í flokki 6. bekkjar en of mikill vindur var í stökkum hans í langstökkinu til að met fengist staðfest. Aron Fannar Birgisson, Vallaskóla, sigraði 60 m á nýju grunnskólameti og hann setti einnig grunnskólamet í langstökki þrátt fyrir að lenda í 2. sæti.

Thelma Karen Siggeirsdóttir, Sunnulækjarskóla, sigraði í 60 m hlaupi í flokki 5. bekkjar, Elínborg Katla Þorgrímsdóttir, Sunnulækjarskóla, sigraði í kúluvarpi og Hrefna Sif Jónasardóttir, Vallaskóla, sigraði í langtökki. Jón Smári Guðjónsson, Sunnulækjarskóla, sigraði í 60 m hlaupi og langstökki í flokki 5. bekkjar og Benjamín Guðnason, Sunnuækjarskóla, sigraði í kúluvarpi í sama flokki á nýju grunnskólameti.

Í flokki 1.-4. bekkinga fengu allir þátttökuverðlaun en fimm grunnskólamet litu dagsins ljós hjá yngstu keppendunum.

Í kúlvuvarpi settu þau Jón Tryggvi Sverrisson, Sunnulækjarskóla, og Anna Bríet Jóhannsdóttir, Vallaskóla, bæði nýtt met hjá 1. bekk. Í 60 m hlaupi féllu síðan þrjú met. Eydís Arna Birgisdóttir, Vallaskóla, og Hákon Garri Gestsson, Sunnulækjarskóla, settu met hjá 2. bekk og í 1. bekk setti Eldur Arnarsson nýtt grunnskólamet þrátt fyrir að hafna í öðru sæti. Vindur var yfir leyfilegum mörkum hjá þeim sem hljóp hraðast.

Öll úrslit mótsins má sjá á mótasíðu FRÍ.