EM-förum Selfoss fagnað

Fulltrúar bæjarstjornar, iðkendur og þjálfari frá fimleikadeild Selfoss sem fóru á Evrópumót og stjórnarmeðlimir.
Fulltrúar bæjarstjornar, iðkendur og þjálfari frá fimleikadeild Selfoss sem fóru á Evrópumót og stjórnarmeðlimir.

Fimleikadeild Selfoss efndi á dögunum til móttöku fyrir iðkendur deildarinnar og þjálfara sem tóku þátt í Evrópumótinu í hópfimleikum 2026. Þar gafst tækifæri til að fagna þessum glæsilega hópi og þakka fyrir framlag hans til íslenskra fimleika.

Berglind Elíasdóttir, ritari stjórnar fimleikadeildarinnar flutti ræðu þar sem lögð var áhersla á þann mikla metnað, vinnu og þrautseigju sem liggur að baki því að keppa fyrir Íslands hönd á stórmóti. Stjórnin lýsti stolti sínu yfir hópnum, sem hefði verið bæði Íslandi og fimleikasamfélaginu á Selfossi til sóma.

Jafnframt var þakkað fyrir mikilvægan stuðning þjálfara, fjölskyldna og allra þeirra sem skapa iðkendunum gott umhverfi til að vaxa og dafna. Stjórnin lýsti einnig stolti yfir landsliðsþjálfara og alþjóðlegum dómara deildarinnar og því öfluga fagfólki sem starfar innan fimleikasamfélagsins á Selfossi. Hópnum var síðan færður þakklætisvottur frá deildinni.

Fulltrúar úr bæjarstjórn Árborgar mættu einnig til móttökunnar og veittu þátttakendum viðurkenningar. Sveinn Ægir Birgisson flutti ávarp þar sem hann fór yfir glæsilegan árangur hópsins og hversu flottar fyrirmyndir þau væru. Þá nefndi hann hversu spennandi það verður þegar fimleikadeildin fær nýja aðstöðu í Stekkjarskóla og hversu mikil lyftistöng það verður fyrir deildina og erum við hjartanlega sammála því og hlökkum mikið til. 

Við óskum EM-förunum okkar innilega til hamingju og þökkum þeim fyrir að vera frábærar fyrirmyndir. Við hlökkum til að fylgjast með þeim áfram!

Áfram Selfoss!