Fimm frá Selfossi kepptu í mótokrossi á Ólafsfirði

Önnur umferð Íslandsmótsins í mótokrossi fór fram á Ólafsfirði 2. júní sl. Ekki var hægt að biðja um betra veður. Helst að hægt væri að kvarta yfir hitanum. Brautin fyrir norðan var sandur og leit mjög vel út, en var erfið fyrir suma keppendur vegna þess hve sandurinn var þungur. Rúmlega 70 keppendur voru skráðir til leiks. Þar af voru fimm meðlimir mótokrossdeildar Umf. Selfoss sem stóðu sig með prýði. Í kvennaflokki var Einey Ösp Gunnarsdóttir skráð til leiks og gekk mjög vel. Hún endaði í 4. sæti yfir daginn. Þorsteinn Helgi Sigurðsson var skráður í 85 cc flokkinn. Allt gekk upp hjá honum enda vanur því að hjóla í sandi og kláraði hann daginn fyrstur. Í unglingaflokki voru þeir Andri Orri Hreiðarson og Ragnar Páll Ragnarsson skráðir. Andra gekk ágætlega og endaði í 9. sæti eftir daginn. Ragnar Páll átti góðan dag og endaði í 4. sæti. Jóhann Smári Gunnarsson var skráður í B-flokk og kláraði í 3. sæti eftir ágætan dag. Næsta keppni verður á Akranesi þann 7. júlí og verður gaman að sjá hvernig gengur þar hjá okkar keppendum. 
-eög

Mynd: Þorsteinn Sigurðsson í öðru mótói sínu í 85 cc flokki.