Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við fimm unga leikmenn félagsins til næstu þriggja ára.
Þetta eru þeir Gestur Helgi Snorrason (2008), David Dabrowski (2008), Freyr Héðinsson (2007), Maksymilian Luba (2009) og Jóhann Frans Ólason (2009). Allir eru þeir uppaldnir hjá félaginu nema Jóhann Frans sem kemur frá Sindra.
Með samningunum gefst tækifæri til að vinna enn markvissar með leikmönnunum í einstaklingsmiðaðri þjálfun og þróun, bæði innan vallar og utan. Markmiðið er að skapa umhverfi þar sem efnilegir leikmenn fá aukinn stuðning, eftirfylgni og tækifæri til að þróast sem knattspyrnumenn á sama tíma og þeir stíga sín fyrstu skref í átt að meistaraflokksknattspyrnu.
Knattspyrnudeild Selfoss bindur miklar vonir við þessa ungu leikmenn og hlakkar til að fylgjast með framgangi þeirra á næstu árum.