Fleiri undirskriftir!

Þær Lovísa Guðrún Einarsdóttir, Auður Helga Halldórsdóttir og Brynja Líf Jónsdóttir skrifuðu á dögunum allar undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss.

Allar léku þær stórt hlutverk í 2.deildinni á síðasta tímabili þegar liðið fór taplaust í gegnum deildina. Auður er stödd í Bandaríkjunum en verður klár í slaginn í Lengjudeildina í sumar.

Til hamingju með nýja samninginn!