Fréttabréf Umf. Selfoss – September

Það var mikið um að vera hjá deildum Umf. Selfoss í ágúst og ýmislegt sem er framundan í september.

Borðtennisdeild

Borðtennisdeildin hefur verið að undirbúa nýtt tímabil. Deildin hélt æfingadag með Garpi frá Laugalandi, Leikmaður frá Þýskalandi kom í heimsókn og Diego Pinero, þjálfari á Hellu kom í heimsókn til deildarinnar.

Lið deildarinnar í 2. deild er byrjað að æfa saman um helgar. Formlegar æfingar fyrir lengra komna hófust 31. ágúst og byrjendahópurinn hóf æfingar 1. september.

Rubén, þjálfari deildarinnar tekur þátt í Frístundamessu Árborgar í byrjun september og allir sem vilja kynna sér störf deildarinnar geta hitt á hann þar.

Fyrsti leikur 2. deildarliðsins verður 19. september. Fyrstu leikir liðanna í 4. deild verða 20. september.

Fimleikadeild

Skráning hjá fimleikadeildinni fer vel af stað. Vetrarstarfið hófst 1. september og deildin hlakkar til að taka á móti nýjum sem vönum iðkendum.

Parkour

Fimleikadeildin er með Parkour-æfingar sem eru í boði fyrir tvo aldurshópa:

  • Yngri hópur, börn fædd 2016–2018, æfir á miðvikudögum kl. 17:00–18:00 og fimmtudögum kl. 15:00–16:00.
  • Eldri hópur, börn fædd 2015 og fyrr, æfir á miðvikudögum og föstudögum kl. 18:00–19:00.

Æfingarnar fara fram í Baulu við Sunnulækjarskóla.

Trampólínnámskeið

Fimm skipta trampólínnámskeið verður fyrir börn fædd 2015–2017. Stúlkur æfa á mánudögum kl. 14:00–15:00 og drengir á fimmtudögum kl. 14:00–15:00.

Námskeiðið hefst 7. september hjá stúlkum og 10. september hjá drengjum. Þjálfari er Karym.

Íþróttaskóli

Íþróttaskóli fimleikadeildarinnar hefst aftur 13. september. Skólinn er fyrir börn á aldrinum eins til fimm ára og æfingar verða á sunnudögum. Alls verður íþróttaskólinn haldinn í 12 skipti.

Á æfingunum verða meðal annars þrautabrautir, þemaæfingar og verkefni sem styðja við hreyfiþroska barna.

Æfingatímarnir eru:

  • Hópur 1, börn fædd 2024–2025: kl. 09:30–10:15.
  • Hópur 2, börn fædd 2022–2024: kl. 10:30–11:15 (Fullt)
  • Hópur 3, börn fædd 2021–2023: kl. 11:30–12:15.

Fullorðinsfimleikar

Sex vikna námskeið í fullorðinsfimleikum hefst 14. september. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og fólki sem hefur áður æft fimleika.

Æfingar verða á mánudögum kl. 19:30–21:00 og miðvikudögum kl. 19:00–20:30. Áhersla verður á liðleika, styrk og skemmtilegar æfingar.

Nánari upplýsingar og skráning eru á Abler: www.abler.io/shop/umfs/fimleikar

Helstu dagsetningar síðar í haust eru:

  • 20. nóvember – Mótaröð.
  • 21.–22. nóvember – Haustmót yngri.
  • 28.–29. nóvember – Haustmót eldri.
  • 12. desember – Jólasýning.

Aðalsamstarfsaðilar fimleikadeildarinnar í vetur eru Íslandsbanki, HSH þrif og flutningar, Bílverk BÁ og Hótel Geysir. Deildin er mjög þakklát fyrir áframhaldandi stuðning þeirra.

Frjálsíþróttadeild

Í ágúst hélt frjálsíþróttadeildin Brúarhlaup Selfoss. Héraðsmót HSK og Héraðsmót fatlaðra voru einnig haldin.

Bryndís Embla keppti á heimsmeistaramóti U20 í Bandaríkjunum.

Meistaramót Íslands fyrir 11–14 ára fór fram í Borgarnesi. Lið HSK vann heildarstigakeppni mótsins.

HSK hélt einnig Meistaramót Íslands í fjölþrautum og fyrir eldri aldursflokka. Mótið fór fram á Selfossvelli. Þar var einnig haldið kastmót í ágúst og yngri flokkar deildarinnar héldu slúttmót.

Vetraræfingar eru nú að hefjast. Akademíuæfingar í FSu eru einnig að byrja. September er yfirleitt rólegur mánuður í frjálsum íþróttum og samkvæmt þeim upplýsingum sem bárust eru engin mót framundan í mánuðinum.

Mótokrossdeild

Það hefur verið mikið um að vera hjá mótokrossdeildinni. Iðkendur deildarinnar tóku þátt í Íslandsmótum í mótokrossi og enduro, ásamt bikarmótum.

Iðkendur deildarinnar náðu frábærum árangri. Eric Máni Guðmundsson varð Íslandsmeistari í MX2 með fullt hús stiga eftir sumarið. Alexander Adam varð í öðru sæti í MX1.

Ísmael Ísak byrjaði í sumar að keppa undir merkjum Umf. Selfoss. Hann varð Íslandsmeistari í unglingaflokki 125cc.

Eric Máni og Alexander hafa einnig verið valdir til að keppa fyrir íslenska landsliðið í mótokrossi. Eric keppir á MXoN í Frakklandi og Alexander keppir á Coupe de l’Avenir í Belgíu.

Sumarstarfi deildarinnar lýkur í september. Síðasta æfing tímabilsins verður 9. september.

Handknattleiksdeild

Handboltatímabilið er farið af stað. Æfingar yngri flokka eru hafnar og allir sem hafa áhuga á að prófa handbolta eru velkomnir á æfingu. Æfingatöfluna má finna á heimasíðu Umf. Selfoss eða með því að smella hér

Meistaraflokksliðin hefja keppni í þessari viku. Spennandi vetur er fram undan hjá liðunum okkar. Við hvetjum stuðningsfólk til að mæta á leikina og styðja liðin í vetur.

Fyrstu leikirnir eru:

  • Fimmtudaginn 3. september kl. 19:30: Selfoss – Valur í Olísdeild karla í SET-höllinni.
  • Laugardaginn 5. september kl. 15:00: Valur – Selfoss í Olísdeild kvenna á Hlíðarenda.
  • Laugardaginn 5. september: HK 2 – Selfoss 2 í Grill 66-deild karla í Kórnum.

Vonumst til að sjá sem flesta í SET höllinni!

Knattspyrnudeild

Bæði meistaraflokkslið Selfoss eru í toppbaráttu í sínum deildum. Staða liðanna mun skýrast um miðjan september.

Karlaliðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Gatorade-bikarsins með öruggum sigri á Ými í átta liða úrslitum 4. ágúst. Liðið mætir Álftanesi í undanúrslitum um miðjan september.

Flokkaskipti fóru fram hjá 5.–8. flokki félagsins. Slútt var haldið í hálfleik í leik Selfoss og ÍA. Þar fengu iðkendur Domino’s-pizzur og gjafabréf frá Huppu.

Tuttugasta Olísmótið fór fram í byrjun ágúst og heppnaðist mjög vel. Rúmlega 700 keppendur frá 20 félögum tóku þátt og alls voru 360 leikir spilaðir. Sænska liðið AIK vann mótið.

Það er margt spennandi fram undan hjá Umf. Selfoss. Við óskum öllum iðkendum, þjálfurum, liðum og sjálfboðaliðum góðs gengis í september.

Upplýsingarnar í þessari frétt komu frá deildunum sjálfum. Þær deildir sem sendu inn efni eru því með í þessu yfirliti.