Frjálsíþróttaakademía Umf. Selfoss og FSu

FSu
FSu

Á vorönn 2014 verður nemendum Fjölbrautaskóla Suðurlands gert kleift að velja frjálsíþróttaakademíu við skólann. Það er sérstök ánægja innan Umf. Selfoss að hafa bætt einni akademíu við flóru þeirra íþróttaakademía sem þegar er boðið upp á í samstarfi FSu og Umf. Selfoss.

Um er að ræða afreksíþróttaáfanga sem unninn er í samstarfi við Ungmennafélag Selfoss. Í akademíunni verður lögð er áhersla á einstaklinginn, getu hans í frjálsíþróttum og framfarir. Með miklum og vel skipulögðum æfingum í frjálsum íþróttum sem og í þjálfun þrekþátta og tækni er stefnt að því að byggja upp einstaklinga sem hafa alla burði til að ná langt í sinni íþrótt.

Nemendur kynnast öllum greinum frjálsra íþrótta en velja á milli þess að leggja megináherslu á stökk, köst, spretthlaup eða langhlaup. Með mælingum og mati í upphafi áfangans verða persónuleg markmið sett fyrir hvern og einn. Nemendur gangast undir strangar æfingar, mætinga- og agareglur með það að markmiði að þeir læri af reynslunni hvernig má ná árangri.

Lagt er upp úr því að nemendur læri að vera hluti af liðsheild þar sem einstaklingurinn þarf að gera upp við sig og forgangsraða hlutum í sínu lífi út frá þörfum heildarinnar.

Æft verður þrisvar sinnum í viku á skólatíma. Ýmist í íþróttasal, kennslustofu eða þreksal í Iðu. Einnig er gert ráð fyrir 4-5 æfingum á viku með meistaraflokki frjálsíþróttadeildar Selfoss.

Gert er ráð fyrir æfingagjöldum í frjálsíþróttaakademíunni. Innifalið í gjaldinu er þjálfun í akademíu sem og í meistaraflokki frjálsíþróttadeildarinnar, aðgangur að sjúkraþjálfara, tryggingar og æfingaföt.

Gerðar verða ríkar kröfur um stundvísi á æfingar, vinnusemi, aga og heilbrigðan lífsstíl.

Í boði verða sex áfangar sem samsvarar þriggja ára námi í akademíunni samhliða öðru námi.

Frjálsíþróttamaðurinn Ólafur Guðmundsson verður yfirkennari í nýju akademíunni.

Frjálsíþróttaakademían eykur enn við fjölbreytni í námsvali nemenda sem vilja efla sig og styrkja sem afreksmenn í íþróttum. Auk hennar er boðið upp á akademíur við FSu í handknattleik, knattspyrnu, körfuknattleik, fimleikum og hestaíþróttum.