Handknattleiksdeild Umf. Selfoss boðar til fundar fyrir sína félaga til þess að móta sýn handknattleiksdeildarinnar á uppbyggingu íþróttamannvirkja í Árborg.
Nú stendur til að fara í uppbyggingu við Stekkjaskóla þar sem nokkrir möguleikar eru fyrir hendi fyrir handboltann. Einnig stendur til að móta framtíðarsýn íþróttamannvirkja við Engjaveg.
Handknattleiksdeildin þarf að taka afstöðu til þess hvaða uppbyggingu hún sér fyrir sér við Stekkjaskóla.
Allir sem hafa áhuga á viðfangsefninu eru velkomnir á fund í Tíbrá miðvikudaginn 3. júní klukkan 19:00.