Galdrakarlinn í OZ

Jólasýning fimleikadeildar Selfoss verður haldin laugardaginn 8.desember.  Í ár setja krakkarnir upp Galdrakarlinn í OZ.  Búast má við lífi og fjöri í íþróttahúsi Vallaskóla á laugardaginn þegar Dórótea, ljónið, tinkarlinn og fuglahræðan taka á móti gestum , en sýningarnar verða þrjár talsins.  Sú fyrsta hefst klukkan 9:30, önnur sýning er svo klukkan 11:30 og sú síðasta verður klukkan 13:15.  Mikill undirbúningur hefur verið í gangi hjá börnum, þjálfurum, stjórn og foreldrum og má búast við heljarinnar sýningu að vanda.  Öll börn í deildinni taka þátt í þessu verkefni deildarinnar sem hefur vaxið ár frá ári.  Á milli sýninga verður hægt að kaupa sér hressingu í anddyri Vallaskóla.   Aðgangseyrir er 1000kr. fyrir 13 ára og eldri en frítt er fyrir 12 ára og yngri. Forsala aðgöngumiða fer fram föstudaginn 7.desember í anddyri Vallaskóla á milli klukkan 18 og 20.  Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn.

          

 Listamaður: Þyrí Imsland