Góður árangur á Rey Cup

Knattspyrna - Rey Cup 4. fl. kk. eldri
Knattspyrna - Rey Cup 4. fl. kk. eldri

Alþjóðlega Rey Cup mótið fór fram í Laugardalnum í Reykjavík um helgina og tóku fjögur lið frá Selfossi þátt auk þess sem sameiginlegt lið Selfoss og Sindra tók þátt í 3. flokki kvenna. Árangurinn var með miklum ágætum og unnu til að mynda strákarnir í 4. flokki í sínum keppni í sínum flokki.

Þátttakendur á Rey Cup eru 13-16 ára og er þetta langstærsta knattspyrnumót landsins fyrir þennan aldurshóp. Alls komu um 1.600 unglingar saman, spiluðu knattspyrnu og skemmtu sér konunglega frá miðvikudegi til sunnudags.

Ljósmyndir frá foreldrum.