Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum

Frjálsar - Héraðsleikar HSK (6)
Frjálsar - Héraðsleikar HSK (6)

Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið miðvikudaginn 17. maí.

Keppni í 1.-2. bekk hefst klukkan 16:30 og í 3.-4. bekk klukkan 17:15. Mæting er 20 mínútum fyrr til að skrá sig til keppni.

Hjá 7.-10. bekk hefst keppni klukkan 16:30 í spjótkasti en aðrar greinar hjá 5.-10. bekk hefjast klukkan 18:00.

Keppt er í langstökki, spretthlaupi og kúluvarpi í öllum flokkum en einnig í spjótkasti hjá 7.-10. bekk.