Grýlupottahlaup 3/2026 - Úrslit

3 hlaupið í Grýlupottahlaupinu fór fram laugardaginn 25.apríl. 

Hjá stelpunum náði  Ástdís Lilja Guðmundsdóttir besta tímanum, en hún hlaup á tímanum 03:19.

Hjá strákunum var það Elmar Andri Bragason sem náði besta tímanum eða 03:27.

Hlaupið var þriðja hlaupið af 6 hlaupum. Næstu hlaup eru 2.maí, 9.maí & 16.maí. Að loknum sex hlaupum eru teknir saman besti árangur úr samanlögðum fjórum hlaupum og veitt verðlaun.

Úrslit úr hlaupinu má sjá á eftirfarandi slóð: https://timekeep.34h.dev/Grylupottahlaup

Ef þið sjáið villu í úrslitum (vitlaust nafn, rangt fæðingarár eða tími stemmir ekki) sendið þá athugasemd á netfangið frjalsar@umfs.is