Grýlupottahlaup 6/2026 - Úrslit

Fyrsti ráshópur við rásmarkið.
Fyrsti ráshópur við rásmarkið.

Alls tóku 111 keppendur þátt í sjötta og síðasta Grýlupottahlaupinu þetta árið. Hlaupið var laugardaginn 16.maí.

Hjá stelpunum náði Steinunn Heba Atladóttir besta tímanum en hún hljóp á 3:34 mín.

Hjá strákunum náði Magnús Tryggvi Birgisson besta tímanum, hann hljóp á 2:55 mín.

Verðlaunaafhending fyrir hlaupið verður haldin kl.18 í Kappahl Höllinni miðvikudaginn 20.maí n.k. Þeir sem luku 4 hlaupum af 6 fá viðurkenningu. Einnig verða dregin út tvenn verðlaun fyrir frjálsíþróttabingó sem boðið var upp á í tengslum við fyrstu tvö hlaupin.

Úrslit úr hlaupinu má sjá á eftirfarandi slóð: https://timekeep.34h.dev/Grylupottahlaup

Ef þið sjáið villu í úrslitum (vitlaust nafn, rangt fæðingarár eða tími stemmir ekki) sendið þá athugasemd á netfangið frjalsar@umfs.is