Guðmundur og Þorsteinn Aron léku með U17 í Hvíta-Rússlandi

Knattspyrna - U17 Guðmundur Tyrfingsson og Þorsteinn Aron Antonsson gegn Ísrael
Knattspyrna - U17 Guðmundur Tyrfingsson og Þorsteinn Aron Antonsson gegn Ísrael

Selfyssingarnir Guðmundur Tyrfingsson og Þorsteinn Aron Antonsson léku með U17 ára landsliði Íslands sem endaði í sjöunda sæti á æfingamóti UEFA (UEFA Development tournament) sem fram fór í Hvíta-Rússlandi í seinustu viku. Ísland tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í mótinu og hafnaði í neðsta sæti síns riðils, þrátt fyrir sigur í lokaumferð riðlakeppninnar. Í lokaleik mótsins lagði Ísland lið Úsbekistan 2-1 í leik um sjöunda sætið.

Guðmundur var fyrirliði liðsins í fyrstu þremur leikjum mótsins og kom inn á sem varamaður í seinasta leiknu en Þorsteinn kom inn á sem varamaður í fyrsta leiknum og var í byrjunarliðinu í hinum þremur leikjum liðsins.

U17 karla - 1-2 tap gegn Tadsíkistan

U17 karla - 0-1 tap gegn Georgíu

U17 karla - 2-0 sigur gegn Ísrael

Sigur gegn Úsbekistan hjá U17 karla

Góður árangur hjá strákunum og mikil reynsla sem þeir öðlast í svona stóru verkefni.

---

Þorsteinn Aron #14 og Guðmundur #7 fyrir sigurleik í riðlakeppninni gegn Ísrael.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Tómas Þóroddsson