Haustleikurinn að hefjast hjá Selfoss getraunum

Nýr hópleikur, haustleikur Selfoss getrauna, hefst laugardaginn 6. október. Hægt er að skrá sig til leiks í Tíbrá (Engjavegi 50), þar sem við erum með opið hús frá kl. 11:00 – 13:00 alla laugardaga í vetur. Einnig er hægt að skrá sig í hópleikinn á slóðinni www.tippleikur.is/selfoss.

Eflum félagsandann og mætum í félagsheimili UMF. Selfoss í Tíbrá á laugardagsmorgun. Þar er heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðnabakaríi.

Láttu vini þína, félaga og fjölskyldu vita og hvettu alla til að mæta með okkur.

Við hlökkum til að sjá þig,
Selfoss getraunir.