Hin unga og efnilega Hildur Eva Bragadóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við knattspyrnudeild Selfoss. Samningurinn gildir til næstu þriggja ára.
Hildur lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki síðasta sumar og hefur síðan þá fest sig í sessi sem mikilvægur leikmaður liðsins. Í sumar hefur hún leikið flesta leiki liðsins og staðið vaktina í hjarta varnarinnar. Hildur er fædd árið 2011 en hún á að baki landsleiki fyrir bæði U15 og U16 ára landslið Íslands.
Hildur verður á sínum stað í leikmannahópi Selfoss þegar liðið tekur á móti Keflavík á JÁVERK-vellinum í kvöld.
Við óskum Hildi Evu innilega til hamingju með samninginn!