Hildur Öder skrifar undir nýjan samning við Selfoss

Hildur Öder
Hildur Öder

Hildur Öder Einarsdóttir hefur framlengt samning sinn við Selfoss um tvö ár eða til loka leiktíðarinnar 2015/2016. Hildur hefur leikið 43 leiki fyrir Selfoss og verið mikilvægur hlekkur í ungu og efnilegu liði Selfoss sem hefur leikið í efstu deild síðustu tvö tímabil.

Mikil ánægja er innan félagsins að hafa tryggt Hildi áfram næstu tvö árin og er það liður í áframhaldandi uppbyggingu Selfoss á starfi kvennahandboltans. Fleiri frétta er að vænta af leikmannamálum Selfoss næstu daga og vikur.