Hjálmar Vilhelm Rúnarsson
Hjálmar Vilhelm Rúnarsson hefur verið valinn til að keppa í tugþraut U18 á Norðurlandameistaramótinu í fjölþrautum. Keppnin verður haldin í Gautaborg helgina 14.-15.júní næstkomandi og fara auk þess þrír aðrir íslenskir keppendur á mótið. Rúnar Hjálmarsson yfirþjálfari frjásíþróttadeildar Selfoss verður þjálfari hópsins ásamt Boga Eggertssyni þjálfara FH. Hjálmar Vilhelm á 6025 stig í tugþraut í flokki 16-17 ára og er það jafnframt HSK met í hans flokki. Gaman verður að fylgjast með hinum bráðefnilega Hjálmari Vilhelm spreyta sig við jafnaldra í þrautinni