Hjalti Jón er nýr formaður Frjálsíþróttadeildar

Hjalti Jón og Helgi Sigurður
Hjalti Jón og Helgi Sigurður

Nýlega lét Helgi Sigurður Haraldsson, af embætti formanns Frjálsíþróttadeildar UMF.Selfoss, eftir að hafa gegnt formennsku deildarinnar í 24 ár. Helgi lét af formennsku um leið og hann tók við formennsku hjá Ungmennafélagi Selfoss. Við formennsku í frjálsíþróttadeildinni tók Hjalti Jón Kjartansson, sem sat í stjórn deildarinnar.

Á þessum tímamótum er Helga efst í huga allt það góða fólk sem hann hefur  kynnst í starfi deildarinnar, bæði stjórnarfólk, þjálfarar, iðkendur og foreldrar iðkenda. Einnig sú frábæra uppbygging á aðstöðu til iðkunar frjalsíþrótta sem átt hefur sér stað á Selfossi, en hún jafnast á við það besta á landsvísu, bæði utan- og innanhúss. Formannssetan hefur verið mjög skemmtileg og lærdómsrík og skil ég sáttur við formannsembættið og óska nýjum formanni til hamingju með embættið og ég veit að hann mun sinna því vel. Hvort hann verður formðaður í í 24 ár verður síðan að koma í ljós.