Hrannar Snær til liðs við Selfoss

Hinn 21 ára gamli Hrannar Snær Magnússon er genginn til liðs við Selfoss. Hann kemur til liðsins frá KF en með þeim hefur hann leikið síðustu þrjú sumur. Hrannar hefur undanfarin ár stundað nám við University of the Cumberlands í Bandaríkjunum en hann mun útskrifast þaðan í vor.

Hann hefur samhliða náminu spilað fótbolta með liði skólans í háskóladeildinni. Hrannar er þeim eiginleikum gæddur að hann getur leyst margar stöður á vellinum og er jafnvígur á vinstri og hægri fót.

,,Það er mikil tilhlökkun að fá Hrannar til okkar í vor þegar hann hefur lokið sínu námi. Hann mun verða góð viðbót við okkar öfluga hóp,” segir Dean Martin um komu Hrannar.

Velkominn á Selfoss!