Íslandsmeistarar í formum og bardaga

Taekwondo - Natan Hugi Bikarmót (2)
Taekwondo - Natan Hugi Bikarmót (2)

Um helgina fór bikarmót TKÍ í bardaga og formum fram í Ármannsheimilinu.

Þorsteinn Ragnar Guðnason hélt áfram að gera góða hluti í formum og uppskar þrenn verðlaun þ.e. 2. sæti í einstaklingsformum, 3. sæti í paraformum og 1. sæti í hópaformum.

Margrét Edda Gnarr keppti í einstaklingsformum senior kvenna og hlaut hún bronsverðlaun.

Sigurjón Bergur Eiríksson keppti í -80 kg flokki senior karla í bardaga og hlaut hann bronsverðlaun.

Síðast en ekki síst stal Natan Hugi Hjaltason senunni þar sem hann hlaut gullverðlaun í -63 kg flokki junior karla og var einnig valinn maður mótsins með hæstu stigatölu.

djp

---

Natan Hugi með viðurkenningu sem keppandi mótsins.
Ljósmynd: Umf. Selfoss