Íþrótta- og útivistarklúbburinn – Nýtt námskeið

Íþrótta og útivistarklúbburinn 2018
Íþrótta og útivistarklúbburinn 2018

Nýtt tveggja vikna námskeið í íþrótta- og útivistarklúbbnum, sem er fyrir öll börn fædd 2009-2013, hefst á mánudag en klúbburinn býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumaranámskeið fyrir hressa krakka.

Námskeiðið hefst mánudaginn 24. júní og lýkur 5. júlí. Hægt er að velja heilan dag með hollum og góðum hádegismat eða hálfan dag, fyrir eða eftir hádegi allt eftir því hvað hentar fólki.

Klúbburinn er staðsettur í Vallaskóla og er gengið inn um inngang við eldhús á milli íþróttahúss og gervigrasvallar (Eikatúns). Skráning fer fram í gegnum skráningar- og greiðslukerfið Nóra á slóðinni selfoss.felog.is.

Allar nánari upplýsingar má fá hjá Heiðrúnu Ósk Sævarsdóttur umsjónarmanni klúbbsins í netfanginu sumarnamskeidumfs@gmail.com, í síma 857-9756.

Við hlökkum til að hitta hressa krakka í sumar.