Jón Daði verður í Nettó á Selfossi

Facebook Jón Daði1
Facebook Jón Daði1

Jón Daði Böðvarsson mun taka á móti aðdáendum sínum í verslun Nettó við Austurveg 42 á Selfossi á  laugardaginn, frá klukkan 17:00.

Þar ætlar hann að koma sér vel fyrir og gefa aðdáendum eiginhandaráritanir.

Fyrir þá fyrstu þrjátíu sem mæta og heilsa upp á Jón Daða, verða sjaldgæfar gullmyndir af kappanum í boði. Auk þess verða til sölu sérleg gjafabox, þar sem Jón Daði er í aðalhlutverki.

Jón Daði heldur von bráðar utan til Rússlands ásamt liðsfélögum sínum, þar sem íslenska karlalandsliðið keppir í fyrsta skipti á heimsmeistaramóti í knattspyrnu. Fyrsti leikur liðsins verður gegn liði Argentínu þann 16. júní svo óhætt er að segja að spennan stigmagnist dag frá degi.

 

Allir eru hjartanlega velkomnir í Nettó til þess að kasta kveðju á sinn mann áður en hann heldur út á vit ævintýranna.