Karen Helga til liðs við Selfoss

Mynd: ÁÞG
Mynd: ÁÞG

Karen Helga Díönudóttir hefur skrifað undir við Selfoss og mun spila með liðinu út þessa leiktíð.

Karen Helga hafði lagt skóna á hilluna eftir síðasta keppnistímabil en dregur þá fram aftur og mun hjálpa okkar unga liði mjög mikið í þeirri baráttu sem framundan er við að halda sætinu í Olísdeildinni.

Karen Helga er mjög öflugur miðjumaður með mikla leikreynslu en hún hefur leikið með Haukum allan sinn meistaraflokksferil þar sem hún hefur verið fyrirliði liðsins til margra ára.

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss býður Karen Helgu hjartanlega velkomna.