Katla María í landsliðið

Fyrr í dag var 20 manna hópur valinn til æfinga fyrir vináttulandsleiki gegn Noregi B sem fram fara í byrjun mars.
Það er okkur mikið gleðiefni að Katla María Magnúsdóttir fær kallið í æfingahópinn og á möguleika á að leika sinn fyrsta landsleik.
Þar hittir hún meðal annarra Selfyssingana Perlu Ruth Albertsdóttur og Hrafnhildi Hönnu Þrastardóttur.
Katla María er í dag markahæsti leikmaður Olísdeildar kvenna með 118 mörk  en hún hefur leikið frábærlega það sem af er vetri.
Við óskum Kötlu Maríu innilega til hamingju með valið.