Kristrún Rut og Katrín Ýr skrifa undir

kristrunkatrin
kristrunkatrin

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við Katrínu Ýr Friðgeirsdóttur og Kristrúnu Rut Antonsdóttur, tvær af reyndustu leikmönnum félagsins, um að leika með liðinu í 1. deildinni á næstu leiktíð.

Katrín Ýr er meðal leikjahæstu knattspyrnukvenna Selfoss en hún hefur leikið með liðinu frá því meistaraflokkur kvenna var aftur settur á fót árið 2009. Katrín Ýr er 26 ára gömul, fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Hún hefur leikið 126 leiki fyrir Selfoss og skorað í þeim 55 mörk. Katrín Ýr spilaði 7 leiki í Pepsi-deildinni í sumar en hún sleit krossband í leik með Selfoss í ágúst síðastliðnum en stefnir á að komast á fullt inni á vellinum næsta sumar.

Kristrún Rut var valin leikmaður ársins hjá Selfyssingum í sumar og kom það fáum á óvart enda var hún mjög öflug á miðjunni hjá Selfyssingum í Pepsi-deildinni í sumar. Kristrún, sem er 22 ára gömul, hefur leikið með Selfyssingum frá árinu 2010 en hún hefur spilað 84 leiki fyrir félagið.

Nánar um þetta mál á Sunnlenska.is þar sem rætt er við Svövu Svavarsdóttir úr meistaraflokksráði kvenna um þessar gleði fréttir

---

Kristrún Rut (t.v.) og Katrín Ýr ásamt Svövu Svavarsdóttur, stjórnarkonu í knattspyrnudeild.
Ljósmynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl