Knattspyrnusamband Íslands veitti fjórum Selfyssingum heiðursviðurkenningu á 90 ára afmæli UMFS sem haldið var hátíðlega um síðustu helgi. Systurnar Alma og Selma Sigurjónsdætur og Laufey Inga Guðmundsdóttir hlutu silfurmerki KSÍ og Kjartan Björnsson hlaut gullmerki KSÍ.
Alma og Selma Sigurjónsdætur störfuðu í barna- og unglingaráði Knattspyrnudeildar Selfoss í u.þ.b. 20 ára skeið. Á þeim tíma urðu hin vinsælu Selfossmót til. Helgarnar og sumrin voru undirlögð starfi í þágu félagsins. Systurnar hafa tekið að sér nær öll verkefni sem til falla og taka enn þátt í starfinu af fullum krafti.
Laufey Inga Guðmundsdóttir var brautryðjandi í uppbyggingu kvennaknattspyrnu á Selfossi. Sem ung fótboltakona safnaði hún undirskriftum til að styðja stofnun meistaraflokks kvenna, sem varð að veruleika árið 1984, og lék sjálf með liðinu. Um miðjan tíunda áratuginn kom Laufey að stofnun og þjálfun yngri flokka kvenna. Síðar átti hún þátt í stofnun 2. flokks kvenna, sem lagði grunn að endurvakningu meistaraflokksins árið 2009.
Kjartan Björnsson hefur frá barnæsku sinnt sjálfboðastarfi í þágu deildarinnar, m.a. sem stjórnarmaður, dómari og í margskonar fjáröflunarstarfi. Hann hefur sýnt fágæta framsýni við að varðveita sögu félagsins. Hann skrifaði reglulega upplýsingapistla í héraðsblöðin og afhenti deildinni nýverið þúsundir eigin ljósmynda, sem er ómetanleg söguleg heimild.
Takk fyrir ykkur kæru félagsmenn og til hamingju með viðurkenningarnar!