Leiðtogaskóli NSU

NSU-logo
NSU-logo

Ungmennafélag Íslands er aðili að NSU - Nordisk Samorgnisations for Ungdomasarbejde en samtökin standa fyrir viðburðum fyrir ungt fólk á Norðurlöndum á hverju ári. Leiðtogaskóli NSU fer að þessu sinni fram í Styrn og Vågsøy dagana 10.-16. ágúst en flogið verður til og frá Bergen. UMFÍ á sæti fyrir fjóra þátttakendur á aldrinum 18-30 ára að þessu sinni.

Yfirskrift leiðtogaskólans er fjöll & firðir (Mountains & Fjords). Þú færð tækifæri til að efla leiðtogahæfileika þína, reynslu af því að leiða fólk inn á breytta tíma, reynslu af því að vinna með öðrum, aukna þekkingu á siðum og venjum annarra landa sem og tungumáli þeirra. Þátttakendur fá tækifæri til að reyna sig í ýmsum aðstæðum s.s. á fjalli, á sjó, á jökli, elda mat úti náttúrunni og fleira sem tengist náttúrunni okkar.

Þátttökugjald er 2000 norska krónur ásamt ferðakostnaði en UMFÍ niðurgreiðir fyrir sína þátttakendur helming.

Allar nánari upplýsingar veitir Sabína Steinunn Halldórsdóttir Landsfulltrúi UMFÍ.

Umsóknafrestur er til 10. júní næstkomandi.