Leighton McIntosh í Selfoss

Skoski framherjinn Leighton McIntosh skrifaði í dag undir samning við knattspyrnudeild Selfoss út sumarið, með möguleika á framlengingu næsta tímabil.

McIntosh mun fylla skarð framherjans Alfi Conteh-Lacalle sem var sendur heim á dögunum, en hann náði ekki að blómstra í Selfossbúningnum.

McIntosh hóf atvinnumannaferil sinn hjá Dundee United í Skotlandi en síðustu tvö ár hefur hann leikið með Peterhead í skosku C-deildinni og skorað þar 20 mörk í 58 leikjum.

Nánar er fjallað um feril McIntosh á vef Sunnlenska.is.

---

Jón Steindór Sveinsson, varaformaður knattspyrnudeildarinnar og Leighton McIntosh handsala samninginn.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/GJ