Lífshlaupið hefst í dag

Lífshlaupið 2016
Lífshlaupið 2016

Lífshlaupið verður ræst í níunda sinn miðvikudaginn 3. febrúar nk. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu og gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni frá 3. – 23. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • framhaldsskólakeppni frá 3. – 16. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • grunnskólakeppni frá 3. – 16. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Skrá má alla hreyfingu inn á www.lifshlaupid.is svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu. Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag.

Umf. Selfoss hvetur Selfyssinga til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á sínum vinnustað/skóla.

Vinsamlegast kynnið ykkur þátttökureglur og þá valmöguleika sem skráningarkerfið bíður upp á inn á vefsíðu verkefnisins.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Sigríður Inga Viggósdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á sigridur@isi.is eða í síma 514-4000. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið lifshlaupid@isi.is.

Samstarfsaðilar ÍSÍ vegna Lífshlaupsins eru mennta- og menningarmálaráðuneytið, velferðarráðuneytið, Advania og Rás 2.