Í síðustu viku lyftu ungir iðkendur handknattleiksdeildar Selfoss sér upp og kvöddu tímabilið með viðeigandi hætti. Mikil vinna fer ár hvert í að ala upp handboltafólk, en líka svo margt annað, enda snúast yngri flokkar um fleira en að búa til afreksfólk í handbolta, þar er alla daga verið að ala upp nýja þjálfara, dómara, stjórnarfólk, sjálfboðaliða, foreldra og félagslega sterka einstaklinga inn í samfélagið okkar. Fyrst á dagskrá á samkomunni var að útnefna félaga ársins í yngri flokkunum og það þarf ekki að koma neinum á óvart að Egill Eyvindur Þorsteinsson fékk bikarinn eftirsótta. Hann hefur verið virkilega ósérhlífinn, tekið þátt í mótahaldi, unnið á heimaleikjum meistarafokkanna og tekið að sér aðstoðarþjálfarahlutverk hjá þó nokkrum yngir flokkum. Þess má svo til gamans geta að foreldrar Egils, þau Eva og Þorsteinn voru valinn félagi ársins á lokahófi deildarinnar um miðjan maí.
Allir krakkar í 6. 7. 8. og 9. flokk karla og kvenna fengu viðurkenningu fyrir að hafa lokið vetrinum. Í 4. og 5. flokki voru svo veittar þrjár einstaklings viðurkenningar. Mestu framfarir, sem er alltaf mikil viðurkenning og staðfesting á því að hafa lagt mikið á sig. Besta ástundunin, það er mikils virði að lifa eftir þeim gildum að vera alltaf tilbúin til að læra og leggja hart að sér. Besti liðsmaðurinn er svo einhver sem alltaf tilbúin í að peppa liðsfélagana áfram í blíðu og stríðu og hefur gott hugafar til liðsins. Að lokum var af vana fýrað upp í grillinu og blásið í hörku pylsupartý.

Örn Þrastarson fór með tölu yfir söfnuðinn og Hannes Höskulds var honum til halds og trausts.






9. flokkur 2025

8. flokkur karla 2025

8. flokkur kvenna 2025

7. flokkur karla 2025

7. flokkur kvenna 2025

6. flokkur karla 2025

6. flokkur kvenna 2025

5. flokkur karla 2025

5. flokkur kvenna 2025

4. flokkur karla 2025

4. flokkur kvenna 2025