Lokanámskeið sumarsins í íþrótta- og útivistarklúbbnum

Íþrótta- og útivistarklúbbur 2016
Íþrótta- og útivistarklúbbur 2016

Seinasta námskeið sumarsins í íþrótta- og útivistarklúbbnum, sem er fyrir öll börn fædd 2006-2011, hefst þriðjudag eftir verslunarmannahelgi.

Að þessu sinni verður námskeiðið staðsett í Tíbrá, þjónustumiðstöð Umf. Selfoss við Engjaveg en um er að ræða tveggja vikna námskeið sem hefst þriðjudaginn 2. ágúst og lýkur 12. ágúst.

Sem fyrr er hægt er að velja heilan dag með hollum og góðum hádegismat eða hálfan dag, fyrir eða eftir hádegi allt eftir því hvað hentar fólki.

Allar nánari upplýsingar og skráningar má fá hjá Hilmari og Sigrúnu Örnu umsjónarmönnum klúbbsins í netfanginu sumarnamskeidumfs@gmail.com, í síma 698-0007. Einnig er hægt að skrá börnin í klúbbinn á staðnum.

Við hlökkum til að hitta hressa krakka á lokanámskeiði sumarsins.