Ólafur sæmdur silfurmerki HSK

Frjálsar - Ólafur Guðmundsson
Frjálsar - Ólafur Guðmundsson

Aðalfundur frjálsíþróttaráðs HSK var haldinn Selinu á Selfossi 28. mars sl. Samkvæmt frétt á vef HSK mættu um 20 manns á fundinn frá átta aðildarfélögum ráðsins.

Á fundinum var rætt um starfsemi liðins árs, sem hefur verið kröftugt, en ráðið heldur fjölda héraðsmóta og þá hélt ráðið eitt meistaramót fyrir FRÍ. Auk þess tekur ráðið, í samstarfi við félögin, þátt í öllum meistaramótum FRÍ. Ársreikningur ráðins var lagður fram og þar kemur fram að fjárhagur ráðsins er traustur, en tæplega 600 þúsund kr. hagnaður varð af rekstrinum á síðasta ári.

Nokkrar tillögur voru samþykktar á fundinum, en gerð var breyting á lögum ráðsins um fulltrúafjölda félaga á aðalfundi og fækkar fulltrúuum úr 42 í 32 miðað við að iðkendafjöldi haldist óbreyttur. Gerð var breyting á reglugerð um keppnisgreinar á héraðsmóti og eru þær til samræmis við breytingar sem gerðar hafa verið á keppnisgreinum á meistaramótum. Þá var samþykkt tillaga varðandi boðhlaup á héraðsmótum. Keppendur þurfa að vera skráðir sem keppendur í viðkomandi mót til að mega taka þátt.

Ein breyting var á stjórn ráðsins á fundinum, en Ingvar Garðarsson, sem hefur setið í stjórn ráðsins síðan 2005, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Bryndís Eva Óskarsdóttir, Umf. Gnúpverja kemur ný inn í stjórn, en hún var kosin til tveggja ára. Guðmunda Ólafsdóttir formaður og Tómas Karl Guðsteinsson voru endurkjörin til tveggja ára. Helgi Haraldsson og Silja Dögg Jensdóttir voru kosin til tveggja ára árið 2016.

Benóný Jónsson sérgreinastjóri í frjálsíþróttum á Landsmót 50+ í Hveragerði í sumar kynnti keppnina fyrir fundarmönnum. Búið að raða upp þeim sex greinum sem keppt verður í þann 24. júní.

Þá var rætt um MÍ aðalhluta sem fram fer á Selfossvelli 8.-9. júlí, undirbúningsnefnd mótsins er búin að funda og skipulagning komin af stað.

Í lok fundar sæmdi Guðmundur Jónasson gjaldkeri HSK, f.h. stjórnar sambandsins, tvo einstaklinga með silfurmerki HSK fyrir þeirra miklu og góðu störf fyrir HSK á undanförnum árum.  Þeir sem fengu silfurmerki sambandsins voru Ingvar Garðarsson og Selfyssingurinn Ólafur Guðmundsson sem er vinstra megin á myndinni sem fylgir fréttinni.

Fundargerð aðalfundar og myndir frá fundinum má sjá á vefsíðu HSK.