Opinn Kynningarfundur Stjórnar KND

Stjórn Knattspyrnudeildar boðar til opins fundar til kynningar á störfum stjórnar.

Hugmyndin er að gefa félagsmönnum betri innsýn inn í störf stjórnar og framkvæmdastjóra, hvernig unnið er að framgangi deildarinnar í heild sinni og þau verkefni sem framundan eru.
Stjórn kynnir KPMG skýrsluna og vinnuna að baki henni auk þeirra verkefna sem verið er að vinna út henni.

Öllum er frjálst að mæta en fundurinn verður haldinn í stóra salnum í Tíbrá kl.20:30 þriðjudaginn 21.mars.
Þeir sem hafa áhuga á störfum innan félagsins, hvort heldur sem er í stjórn eða nefndum, eru sérstaklega hvattir til að mæta.