Selfyssingurinn Örn Davíðsson vann til silfurverðlauna í spjótkasti karla á Smáþjóðaleikunum með kasti upp á 68,08m. Frábær árangur hjá Erni sem er 35 ára gamall og enn í fremstu röð. Amir Papazi sigraði með 69,68m löngu kasti. Örn á HSK metið í karlaflokki sem hann náði á Smáþjóðaleikunum fyrir tveimur árum þegar hann kastaði 71,69m.