Perla Ruth framlengir

Perla Ruth Albertsdóttir hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við Handknattleiksdeild Selfoss og er því samningsbundin félaginu til 2029.

Perla er, eins og allir selfyssingar vita ein besta handknattleikskona landsins. Hún var hægt og rólega að koma til baka eftir barnsburð á síðasta tímabili og verður því mikil styrking fyrir stelpurnar að fá Perlu á fullri ferð eftir sumarið.

Það er mjög mikilvægt fyrir okkur Selfyssinga að Perla sé áfram hjá okkur því hún er mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkendur sem og liðsfélaga með faglegri nálgun sinni gagnvart íþróttinni.