Ráðstefna Sýnum karakter á laugardag

synum-karakter-auglysing
synum-karakter-auglysing

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) standa saman að ráðstefnunni Sýnum karakter í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 1. október milli klukkan 10:00 og 12:30. Ráðstefnan markar upphaf að sameiginlegu verkefni og vefsíðu með sama heiti sem ætluð er þjálfurum og íþróttafélögum. Vefsíðan Sýnum karakter verður opnuð á ráðstefnunni.

Á ráðstefnunni mun íþróttafólk og þjálfarar halda erindi um ýmsar hliðar þjálfunar og ræða málið í pallborði. Ráðstefnugestir geta tekið þátt í umræðunum.Þátttakendur á ráðstefnunni eru meðal annars: Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu; Margrét Lára Viðarsdóttir, íþróttafræðingur, B.S. í sálfræði og landsliðskona í knattspyrnu; Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda og félagsmálafræðum við HÍ og Íris Mist Magnúsdóttir, íþróttafræðingur og landsliðsþjálfari í hópfimleikum.

Hvað er Sýnum karakter?

Verkefnið Sýnum karakter er hugsað sem verkfæri fyrir þjálfara til að hlúa að og efla andlega og félagslega þætti hjá börnum og unglingum. Mikilvægi þjálfarans er sett í fókus og einblínt með nýstárlegum hætti á þann jákvæða ávinning sem hlýst af íþróttaiðkun umfram líkamlega, s.s. áhugahvöt, félagsfærni, sjálfstraust, einbeitingu, leiðtogahæfni og markmiðasetningu.

Á vefsíðunni www.synumkarakter.is verða greinar og viðtöl við þjálfara og afreksíþróttafólk þar sem helsta umfjöllunarefni er efling andlegra og félagslegra þátta í gegnum þjálfun.

SÝNUM KARAKTER

Verkefnið Sýnum karakter byggir á Framtíðinni, leiðarvísi í þjálfun barna og ungmenna sem dr. Viðar Halldórsson hefur þróað í mörg ár með það fyrir augum að finna styrkleika íþróttafólks.

Tilgangur Framtíðarinnar er að stuðla að faglegu starfi innan félaga með því að stefna að hámarksárangri í þjálfun hugarfarslegra og félagslegra þátta. Viðar er lektor í félagsfræði við Háskóla Íslands og einn helsti sérfræðingur landsins á sviði íþrótta. Hann hefur unnið eftir aðferðafræðinni með einstökum félögum og landsliðum í íþróttum.

Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, íþróttasálfræðingur og sviðsstjóri á íþróttasviði Háskólans í Reykjavík, og dr. Viðar Halldórsson eru höfundar að efninu í verkefninu Sýnum karakter.

Dagskrá ráðstefnunnar

10:00 Setning ráðstefnunnar Sýnum karakter

10:10 Dr. Viðar Halldórsson, lektor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Karakter: Hvað, af hverju, hvernig?

10:40 Fimm stutt erindi sem tengjast reynslu fyrirlesara af áhugahvöt, félagsfærni, leiðtogum, sjálfstrausti, einbeitingu og markmiðasetningu.

  • Íris Mist Magnúsdóttir, íþróttafræðingur og landsliðsþjálfari í hópfimleikum.
  • Pálmar Ragnarsson, B.S. í sálfræði og körfuknattleiksþjálfari yngri flokka KR.

11:00 Kaffihlé

  • Svanur Þór Mikaelsson, landsliðmaður í taekwondo.
  • Margrét Lára Viðarsdóttir, íþróttafræðingur, B.S. í sálfræði og landsliðskona í knattspyrnu.
  • Daði Rafnsson, markaðsfræðingur, með UEFA A-gráðu og fyrrum yfirþjálfari yngri flokka Breiðabliks í knattspyrnu.

11:40 Dr.Hafrún Kristjánsdóttir, lektor og sviðsstjóri íþróttasviðs HR. Kynning á áhersluþáttum verkefnisins.

12:00 Pallborðsumræður:

  • Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu.
  • Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda og félagsmálafræðum við HÍ.
  • Dr.Viðar Halldórsson.
  • Dr.Hafrún Kristjánsdóttir.

Ráðstefnustjóri er Viðar Garðarsson.

Nánari upplýsingar: 
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, verkefnastjóri UMFÍ, sabina@umfi.is, 898-2279.
Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ, ragnhildur@isi.is, 863-4767.