Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði

UMFÍ - 2017 Nýtt
UMFÍ - 2017 Nýtt

Ungmennaráðstefna UMFÍ, Ungt fólk og lýðræði verður haldin fimmtudaginn 17. september á milli kl. 09:00 og 16:00 í Silfurbergi í ráðstefnu- og tónlistarhúsinu Hörpu. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Lýðræðisleg áhrif - Hvar, hvenær og hvernig getur ungt fólk haft áhrif?

Ráðstefnan er samræðuvettvangur ungs fólks á aldrinum 16 - 25 ára. Markmið og tilgangur ráðstefnunnar er að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks í leik og starfi og gefa okkur, ungu fólki, verkfæri og þjálfun til þess að auka áhrif í okkar nær samfélagi. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Kynningar, málstofur, samtal við ráðamenn og önnur skemmtilegheit sem Ungmennaráð UMFÍ skipuleggur.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður, fyrstur kemur fyrstur fær. Þátttökugjald er 5.900 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í gjaldinu eru ráðstefnugögn og veitingar á Kolabrautinni, veitingastað Hörpunnar. UMFÍ styrkir 80% af ferðakostnaði. Skila þarf inn kvittunum til þess að fá styrk fyrir ferðakostnaði. Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus og á það líka við um rafsígarettur.

Skráning á ráðstefnuna er til föstudagsins 11. september nk. Nánari upplýsingar er á www.umfi.is.

Skráning á ráðstefnuna