Samið við fimm unga og efnilega leikmenn

knattspyrna-fimm-ungir-framlengja
knattspyrna-fimm-ungir-framlengja

Fimm ungir lykilmenn hjá karlaliði Selfoss í knattspyrnu hafa framlengt samninga sína við félagið um þrjú ár.

Þetta eru þeir Svavar Berg Jóhannsson, Haukur Ingi Gunnarsson, Sindri Pálmason, Arnar Logi Sveinsson og Richard Sæþór Sigurðsson.

Strákarnir eru allir í kringum tvítugt; Svavar Berg, Haukur Ingi, Arnar Logi og Sindri eru miðvallarleikmenn en Richard Sæþór sóknarmaður. Allir eru þeir heimamenn og voru í stórum hlutverkum hjá Selfossliðinu í sumar þrátt fyrir ungan aldur.

Adólf Ingvi Bragason, formaður knattspyrnudeildarinnar, segir að þetta séu frábærar fréttir fyrir félagið. „Við viljum senda út mjög skýr skilaboð um að við höfum trú á okkar fólki og viljum gefa því tækifæri til að vaxa og dafna í Selfossbúningnum.“ Nánar er rætt við Adólf Ingva á vef Sunnlenska.is.

---

Adólf Ingvi formaður (standandi) ásamt f.v. Svavari, Loga, Sindra, Hauki og Richard.
Ljósmynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl