Samningar við leikmenn og samstarfsaðila

Undirritun samninga - vefur
Undirritun samninga - vefur

Knattspyrnudeild Umf. Selfoss gekk í dag frá samningum við fjóra leikmenn meistaraflokks kvenna og samstarfssamningi við Íslandsbanka á Selfossi.

Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliða meistaraflokks, undirritaði nýjan tveggja ára samning. Guðmunda er einn af máttarstólpum Selfoss í meistaraflokki og lykilmaður í liði Selfoss í Pepsi deildinni sem hefst í maí.

Hún var markahæsti leikmaður liðsins á seinasta keppnistímabili með 11 mörk og var valin efnilegasti leikmaður Pepsi deildarinnar 2013 af þjálfurum og leikmönnum allra liða. Í nóvember 2013 lék hún sinn fyrsta A-landsleik og spilaði einnig með íslenska liðinu á Algarve mótinu í Portúgal í byrjun mars. Í apríl fer hún með landsliðinu til Ísrael og Möltu í undankeppni HM.

Guðmunda er mikil og góð fyrirmynd fyrir allra yngri iðkendur deildarinnar og er félaginu mikill fengur af því að njóta krafta hennar áfram.

Við sama tilefni voru undirritaðir samningar við þrjár ungar og efnilegar knattspyrnukonur sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Þetta eru þær Bergrós Ásgeirsdóttir, Esther Ýr Óskarsdóttir og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir sem allar eru fæddar árið 1997 og voru lykilmenn í öflugu lið 3. flokks á seinasta keppnistímabili.

Það er félaginu mikill heiður að bjóða ungu og efnilegu knattspyrnufólki samninga sem tryggja að þau æfi og keppi á Selfossi við bestu aðstæður undir handleiðslu okkar góðu þjálfara.

Þá var endurnýjaður samningur við Íslandsbanka á Selfossi sem verður áfram einn helsti samstarfsaðili deildarinnar. Íslandsbanki hefur styrkt deildina um langt árabil og hlakkar knattspyrnufólk til áframhaldandi góðs samstarfs við bankann. Starf deildarinnar byggir á góðum stuðningi samstarfsaðila félagsins og því er mikill akkur í dyggum stuðningi öflugs fyrirtækis á borð við Íslandsbanka.

---

Samningar undirritaðir. Við borðið eru Jón Rúnar Bjarnason, bankastjóri Íslandsbanka, Guðmunda Brynja og Óskar Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar. Fyrir aftan eru Bergrós, Esther Ýr og Sunneva Hrönn.
Mynd: Umf. Selfoss/Gissur