Selfoss - Frakkland

Selfoss vs. Frakkland
Selfoss vs. Frakkland

Ísland tapaði í gær gegn heimsmeisturum Frökkum með 9 marka mun, 31-22. Áður hafði liðið tapað gegn Þjóðverjum í milliriðlinum en liðið sigraði Barein, Japan og Makedóníu eftir tap gegn Króötum og Spánverjum í undanriðlinum. Selfyssingar hafa verið fyrirferðamiklir í íslenska landsliðinu og eigum við þar fimm fulltrúa í leikmannahópnum. Haukur Þrastarson var kallaður inn í hópinn fyrir leikinn gegn Frökkum og var þar með yngsti leikmaður sem tekur þátt á heimsmeistaramótinu í ár. Hann er einnig yngsti leikmaðurinn á HM í sögu Íslands, 17 ára gamall ásamt því að vera yngsti leikmaður Íslands til að skora á HM.

Það var gaman að sjá kunnulega útilínu í leiknum gegn Frakklandi þar sem frændurnir Teitur Örn, Elvar Örn og Haukur spiluðu saman mest allan seinni hálfleikinn. Elvar Örn var besti leikmaður liðsins gegn Frökkum með fimm mörk, Teitur með þrjú og Haukur tvö, Bjarki Már skoraði einnig tvö mörk. 

Næsti leikur er gegn Brasilíu á miðvikudaginn kl 14:30 og verður hann í beinni á RÚV. Þetta er síðasti leikur liðsins, en liðið á ekki möguleika á að spila um sæti á mótinu.


Mynd: Elvar Örn, Teitur Örn, Ómar Ingi og Haukur Þrastarson fyrir leik Íslands og Frakklands.
HSÍ