Selfossvörurnar fást í Stúdíó Sport

Umf. Selfoss - Samningur Stúdíó Sport
Umf. Selfoss - Samningur Stúdíó Sport

Í lok seinasta árs var undirritaður þriggja ára samstarfssamningur milli Ungmennafélags Selfoss og Stúdíó Sport á Selfossi. Samningurinn felur í sér að vörur Umf. Selfoss frá Jako Sport á Íslandi verða til sölu í verslun Stúdíó Sport á Selfossi.

Það er félaginu afar mikils virði að eiga góða samstarfsaðila í heimabyggð og mun samningurinn tryggja að iðkendur og forráðamenn geta nálgast Selfossvörurnar á skjótan og góðan hátt ásamt því að efla umgjörð og gæði í kringum starf félagsins.

---

Viktor S. Pálsson formaður Umf. Selfoss og Linda Rós Jóhannesdóttir eigandi Stúdíó Sport gengu frá samningnum.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Gissur Jónsson