Sigur á Val í fyrsta leik

58809762_1455911511228164_2029294463070765056_o
58809762_1455911511228164_2029294463070765056_o

Selfoss vann Val í framlengdum leik í Hleðsluhöllinni í gær, 35-34, en leikurinn var fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts Olísdeildar karla.

Leikurinn byrjaði með miklum hraða en allt var í járnum.  Valur náði frumkvæðinu um miðbik hálfleiksins áður en Selfyssingar náðu svo að jafna leikinn aftur, staðan 17-17 í hálfleik.

Í síðari hálfleik voru liðin aðeins mistækari, en boltinn datt meira fyrir Val í byrjun.  Rúmar 8 mínútur voru liðnar af hálfleiknum þegar fyrsta markið kom hjá Selfyssingum og aftur náðu Valsmenn forustunni, 4 mörk þegar mest var.  Selfoss vann sig hins vegar aftur inn í leikinn og jöfnuðu þegar um 8 mínútur voru eftir af síðari hálfleik.  Við tóku spennandi lokamínútur sem enduðu með því að Selfoss náði að knýja fram framlengingu.

Í framlenginunni fóru Selfyssingar af stað af miklum krafti og skoruðu þrjú fyrstu mörkin.  Valsmenn náðu að saxa á þessa forustu, en höfðu það ekki af að klára hana.  Eins marks sigur í einum af mest spennandi leikjum tímabilsins staðreynd.

Mörk Selfoss: Haukur Þrastarson 13, Elvar Örn Jónsson 5/2, Nökkvi Dan Elliðason 5/1, Árni Steinn Steinþórsson 5, Guðni Ingvarsson 4, Hergeir Grímsson 2, Guðjón Baldur Ómarsson 1.

Varin skot: Sölvi Ólafsson 10 (33%), Pawer Kiepulski 4 (22%).

Nánar er fjallað um leikinn á Sunnlenska.is og Vísir.is og Mbl.is.

Leikur tvö fer fram í Origo höllinni á Hlíðarenda á föstudagskvöldið kl 20:00.  Vinna þarf þrjá leiki í undanúrslitum til þess að komast áfram í úrslitarimmuna.  Það er því ljóst að það verður hið minnsta einn leikur enn í Hleðsluhöllinni sem fram fer á mánudagskvöld kl. 19:30.  Valsmenn hafa rétt út sína hönd og býður stuðningsfólk Selfoss velkomið í Fjósið fyrir leik, við hvetjum auðvitað fólk til að fjölmenna á báða þessa leiki.


Mynd: Haukur Þrastarson fór með himinskautum og skoraði 13 mörk.
Umf. Selfoss / JÁE