Spáð í spilin fyrir Íslandsmótið í handbolta

Olísdeildin
Olísdeildin

Spá þjálfara, fyrirliða og formanna liðanna sem taka þátt í Íslandsmótunum í handknattleik um röð liðanna var kynnt í seinustu viku á kynningarfundi deildanna. Selfoss er spáð sömu sætum og við enduðum í á seinasta keppnistímabili. Stelpunum er spáð 8. sæti í Olísdeildinni og strákunum 2.-3. sæti í 1. deildinni. Tímabilið hjá stelpunum hófst um seinustu helgi en strákarnir hefja leik á morgun og það er ljóst að bæði lið stefna hærra.

Gróttu og ÍBV er spáð Íslandsmeistaratitlum og í 1. deild karla var Stjörnunni spáð beint aftur upp í Olís-deild ásamt annað hvort Fjölni eða Selfoss.

Spárnar litu svona út.

Olís-deild karla
1. ÍBV - 280 stig
2. Valur - 269 stig
3. Haukar - 259 stig
4. Afturelding - 217 stig
5. FH - 192 stig
6. Fram - 181 stig
7. ÍR - 150 stig
8. Akureyri - 145 stig
9. Grótta - 109 stig
10. Víkingur - 88 stig

Olís-deild kvenna
1. Grótta - 520 stig
2. Fram - 514 stig
3. Stjarnan - 466 stig
4. Haukar - 449 stig
5. ÍBV - 383 stig
6. Valur - 363 stig
7. Fylkir - 341 stig
8. Selfoss - 286 stig
9. FH - 236 stig
10. HK - 232 stig
11. KA/Þór - 221 stig
12. ÍR - 144 stig
13. Fjölnir - 126 stig
14. Afturelding - 87 stig

1. deild karla
1. Stjarnan - 175 stig
2.-3. Selfoss - 158 stig
2.-3. Fjölnir - 158 stig
4. HK - 136 stig
5. Mílan - 128 stig
6. KR - 100 stig
7. Þróttur - 93 stig
8. ÍH - 81 stig