Strákalið Selfoss bikarmeistarar - unnu Gerplustráka

Bestu hópfimleikalið landsins kepptu í íþróttahúsi Vallaskóla á bikarmót FSÍ sem fram fór á Selfossi um síðustu helgi. Mótshaldari var fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss. Keppt  var í meistaraflokki karla og kvenna, 1. flokki karla og 1. og 2. flokki  kvenna.

Meistaraflokkur kvenna
Það kom fáum á óvart að meistaraflokkur Gerplu varð bikarmeistai 2012. Lið Stjörnunnar í Garðabæ varð í öðru sæti og meistaraflokkur Selfoss hafnaði í þriðja. Selfoss-stelpurnar stóðu sig með prýði og náðu m.a. öðru sæti í dansi og á dýnu.

1.og 2. flokkur kvenna
Stelpurnar í Selfoss 2, sem kepptu í 1. flokki kvenna, lentu í 3. sæti á eftir Stjörnunni, en Gerplustelpur urðu bikarmeistarar. Mjög gaman var að fylgjast með Selfoss 4, sem kepptu í 2. flokki, og unnu til silfurverðlauna. Þær voru efstar á trampólíni en dansinn dró þær niður. Hópurinn er á feikna siglingu og verður gaman að fylgjast með þeim næstu árin. Bikarinn í 2. flokki fór einnig í Kópavoginn.

Bikarinn á Selfoss
Aðeins eitt karlalið mætti til keppni í meistaraflokki og því urðu Gerplustrákar bikarmeistarar 2012. Í 1. flokki karla var reglulega skemmtilegt að fylgjast með karlaliði Selfoss sem keppti gegn karlaliði Gerplu. Eftir spennandi keppni stóðu Selfoss uppi sem sigurvegar og bikarmeistarar 2012 í 1. flokki. Góð frammistaða í dansi og á trampólíni tryggði strákunum sigur, en 0,10 stig skildu liðin að í lokin. Það hefur verið gaman að fylgjast með  strákunum undanfarin ár. Þeir hafa verið í stöðugri sókn, fyrst í  blönduðum flokki, en nú voru þeir í fyrsta sinn að keppa sem karlalið.

ob