Sumaræfingar að hefjast

Motokross - Alexander Adam Kuc á Sardiníu (3)
Motokross - Alexander Adam Kuc á Sardiníu (3)

Það verður líf og fjör hjá mótokrossdeild Selfoss í sumar eins og undanfarin ár.

Æfingar hefjast í byrjun júní og verður boðið verður upp á æfingar í tveimur hópum, annars vegar fyrir yngri og óreyndari og hins vegar fyrir eldri og reyndari.

Ásta Petra Hannesdóttir verður með æfingar fyrir 65 cc og byrjendur í 85 cc á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 19:00 – 20:30.
Æfingargjöld fyrir yngri hóp eru kr. 10.000 á mánuði.

Aron Ómarsson verður með æfingar fyrir 85 cc og stærri hjól á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 19:00 – 21:0.
Æfingargjöld fyrir eldri er 15.000.kr á mánuði.

Skráningar fara fram í gegnum skráningar- og greiðslukerfið Nóra á slóðinni selfoss.felog.is/

Hvetjum fólk til að fylgjast með tilkynningum á Fésbókarsíðunni UMFS Motocross Selfoss.