Tuttugasta Olísmótið fór fram á Selfossi um helgina. Mótið heppnaðist afar vel en en rúmlega 700 keppendur voru á mótinu frá tuttugu félögum. 360 leikir voru spilaðir á mótinu.
Þrátt fyrir mikla rigningu á föstudag fór allt vel fram og skemmtu leikmenn, þjálfarar og forráðamenn sér frábærlega. Á laugardag var veðrið hliðhollara en á sunnudag var algjör rjómablíða.
Sænska liðið AIK mætti í fyrsta skipti á mótið og mætti segja að þeir hafi komið, séð og sigrað en liðið stóð uppi sem sigurvegari í deilar- og bikarkeppni. Liðið lagði HK af velli í úrslitaleik, 3-1.
Gunnar Borgþórsson, yfirþjálfari knattspyrnudeildar Selfoss og mótastjóri var í skýjunum með helgina.
„Mótið gekk frábærlega. Það sem stóð uppúr var það hversu marga góða leiki við fengum, mótafyrirkomulagið var gott og foreldrar, þjálfarar og keppendur fóru ánægð til síns heima.
„Það var gott að fá AIK á mótið sem er stórlið í Skandinavíu og sjá okkar krakka bera sig saman og máta sig við þeirra leikmenn. Ég reikna með að sjá AIK aftur á Olísmótinu og við erum farin að undirbúa það að taka á móti fleiri erlendum liðum á mótið,” segir Gunnar að lokum.