Þórdís Bjarnadóttir og Ófeigur Ágúst Leifsson voru sæmd silfurmerki Íþróttasambands fatlaðra fyrir framlag sitt til íþrótta fatlaðra á Suðurlandi. Þau tóku við viðurkenningunni á lokahófi Íslandsmótsins í boccia á Selfossi sunnudaginn 1. nóvember. Mótið var haldið í tilefni af 40 ára afmæli Suðra.
Þau Þórdís og Ófeigur hafa um árabil verið í hópi þeirra sem halda starfi Suðra gangandi, jafnt á æfingum sem á bak við tjöldin. Þórdís var formaður Suðra frá 2011 til 2016 og hefur einnig gegnt störfum ritara og gjaldkera. Ófeigur er formaður Selfoss-Suðra og hefur sjálfur þjálfað iðkendur deildarinnar í boccia. Á Íslandsmótinu á heimavelli stigu fjórir keppendur deildarinnar á verðlaunapall.
Umf. Selfoss óskar Þórdísi og Ófeigi innilega til hamingju með silfurmerkin.